STAÐUR, dagsetning

 

Kæru foreldrar/forráðamenn

 

Ég stunda á þessu ári nám við Kennaraháskóla Íslands (KHÍ) og er nú ásamt fjölmörgum öðrum nemendum að vinna að rannsókn á námskeiði við skólann undir stjórn Sólveigar Jakobsdóttur, dósents við KHÍ.  Rannsóknin fjallar um hvernig börn og unglingar nota Netið. 

 

Í þessari rannsókn er gert ráð fyrir að safnað verði gögnum í mörgum skólum víða um landið -  tveir einstaklingar (einn strákur og ein stelpa) hafa verið valdir af handahófi úr hverjum skóla og hefur þitt barn lent í úrtaki sem boðið er að taka þátt í rannsókninni úr skóla X.  Barnið þitt hefur ásamt einu öðru samþykkt af sinni hálfu að taka þátt í rannsókninni og er nú óskað eftir leyfi foreldra/forráðamanna.  Ef þú leyfir að barnið þitt taki þátt í rannsókninni verður fylgst með því í 5-20 mín. að nota Netið í skólanum (venjuleg nýting, ekki sérstaklega skipulögð vegna rannsóknarinnar) og síðan tekið viðtal um 10-15 mín. þar sem börnin verða spurð hvernig þau nota tölvur og Netið dags daglega innan skóla og utan.   þátttakendi í rannsókninni getur dregið sig til baka og hætt þátttöku hvenær sem er á meðan rannsókninni sem stendur.

 

Öll gögn verða sett inn á gagnagrunnstengdan vef (http://www.netnot.is) án nokkurra persónuaukenna annarra en kyns og aldurs.  Gögn verða hvorki send inn með nafni mínu né þeirra einstaklinga sem fylgst verður með.  Einu persónuauðkennin verða kyn og aldur.  Undanfarin ár hafa margir kennaranemar úr KHÍ tekið þátt í verkefninu og hafa safnast lýsingar á atferli og upplýsingar úr viðtölum í þennan gagnagrunn frá árunum 2001 til 2005 en hlé hefur verið á rannsókninni síðan þá.  Skoðað hefur verið  t.d. notkunarmynstur einstaklinga eftir kyni og aldri og hvernig það mynstur þróast með nýrri tækni og notkunarmöguleikum.  Lýsing á rannsókninni hefur verið borin undir Persónuvernd og hefur ekki verið talin þörf á að sækja sérstaklega um leyfi frá henni fyrir rannsókn af þessu tagi.  Vonast er til að þessi gögn muni m.a. veita góða innsýn í notkunarmöguleika Netsins í skólastarfi en einnig þeim vandamálum sem tengst geta netnotkun. Því ættu þau að geta nýst skóla barnsins þíns beint og óbeint í framtíðinni.

 

Notkun Netsins hefur þegar valdið byltingu á ýmsum sviðum í þjóðlífinu og gert er ráð fyrir aukinni og bættri nýtingu þess í skólastarfi á komandi árum.  Nokkuð er nú til af tölulegum upplýsingum um hversu mikið Netið er notað og hvernig aðgengi fólks er háttað að Netinu.  Á hinn bóginn vantar eigindleg gögn sem lýsa hvernig Netið er í raun notað og hvaða áhrif netnotkun í skóla og á heimilum hefur hugsanlega á nám fólks og líf. Því er vonast til að þú leyfir barninu þínu þátttöku í rannsókninni.

 

Ef óskað er nánari upplýsinga um þessa rannsókn þá er velkomið að hafa samband við Sólveigu Jakobsdóttur, dósent við KHÍ, en hún hefur umsjón með þessu verkefni eins og áður var nefnt (í s. síma 563-3934 eða 663-7561) eða við mig (í s. xxx-xxxx).  Einnig eru nánari upplýsingar að finna á vef verkefnisins – http://www.netnot.is

 

Með von um jákvæðar viðtökur.

 

NAFN

 

 

Ég leyfi að ________________________________ (nafn nemenda) taki þátt í ofangreindri rannsókn um netnotkun barna og unglinga á Íslandi

 

_____________________________________

(undirritun foreldris/forráðamanns)